Sony Xperia E1 - Forritastjórnun

background image

Forritastjórnun

Þú getur farið á milli forrita með því að nota stýrihnappana, smáforritastikuna og gluggann

með nýlega notuðum forritum, þar sem er auðvelt að skipta á milli allra nýlega notaðra

forrita. Sum forrit lokast þegar þú ýtir á til að hætta, en önnur halda áfram að keyra í

bakgrunninum eða fara í bið. Ef forrit er í bið eða keyrir í bakgrunninum getur þú haldið

áfram þar sem frá var horfið næst þegar þú opnar forritið.

1

Gluggi með nýlega notuðum forritum – Opnaðu nýlega notað forrit

2

Smáforritastika – Opnaðu smáforrit

3

Verkstýringarhnappur – Opnaðu gluggann með nýlega notuðum forritum og smáforritastikuna

4

Heimahnappur – Lokaðu forriti og farðu aftur á heimaskjáinn

5

Til baka stýrihnappurinn – Farðu aftur á fyrri skjá í forrit eða lokaðu forritinu

Opna nýlega notaðan forritsglugga

Ýttu á .

Valmynd í forriti opnuð

Þegar þú ert að nota forritið skaltu ýta á .

Ekki er boðið upp á valmynd í öllum forritum.