Tækið ræst í fyrsta sinn
Þegar þú ræsir tækið í fyrsta skipti útskýrir uppsetningarhjálpin grunnstillingar tækisins og
aðstoðar þig við innskráningu í suma reikninga og við að sérsníða tækið. Ef þú ert t.d.
með Sony Entertainment Network reikning getur þú skráð þig inn á hann og sett hann
upp undir eins. Þú getur líka sótt internet- og Wi-Fi®-stillingar.
Þú getur líka fengið aðgang að uppsetningarleiðsögn seinna í stillingavalmyndinni.
Til að kveikja á tækinu
1
Haltu rofanum inni þar til tilkynningaljósið flassar einu sinni.
2
Sláðu inn PIN-númerið fyrir SIM-kortið, ef beðið er um það, og pikkaðu svo á
.
3
Bíddu augnablik þar til tækið ræsist.
Til að slökkva á tækinu
1
Haltu rofanum inni þar til valkostavalmyndin opnast.
2
Í valkostavalmyndinni pikkarðu á
Slökkva.
3
Pikkaðu á
Í lagi.
Nokkur tími getur liðið þar til slokknar alveg á tækinu.