Sony Xperia E1 - Minni og geymsla

background image

Minni og geymsla

Tækið er með nokkrar gerðir af minni og geymslumöguleikum fyrir myndir, forrit og aðrar

skrár:

Innri geymslan er u.þ.b. 2 GB og er notuð til að geyma sótt eða flutt efni ásamt

persónulegum stillingum og gögnum. Sem dæmi má nefna stillingar vekjara, hljóðstyrks

og tungumála, tölvuskeyti, bókamerki, símtalaskrár, tengiliði, skilaboð, dagbókarviðburði,

myndir, myndskeið og tónlist.

Hægt er að nota

minniskort sem hægt er að fjarlægja sem er allt að 32 GB til að fá meira

geymslupláss. Flest forrit geta lesið gögn af minniskorti en aðeins ákveðin forrit geta

vistað skrár í minni af þessu tagi. Það er til dæmis hægt að stilla myndavélarforritið

þannig að það visti beint á minniskortið.

Innra minnið (RAM) er u.þ.b. 512 MB og ekki er hægt að nota það til geymslu. Innra

minni er notað til að meðhöndla forrit sem verið er að keyra, sem og stýrikerfið.

Hugsanlega þarftu að kaupa minniskort sérstaklega.

Þú getur lesið þér betur til um notkun minnis í Android-tækjum með því að sækja skjal

um tækið þitt á

www.sonymobile.com/support.

Afköst minnisins bætt

Minni tækisins á það til að fyllast við venjulega notkun. Ef tækið fer að hægja á sér eða

forrit lokast skyndilega skaltu hafa eftirfarandi í huga:

Það þarf alltaf að vera meira en

100 MB af lausu plássi á innri geymslu og 100 MB af

lausu innra minni.

Lokaðu forritum sem þú ert ekki að nota.

Hreinsaðu skyndiminni fyrir öll forrit.

Fjarlægðu sótt forrit sem þú notar ekki.

Flyttu myndir, myndskeið og tónlist úr innra minni yfir á minniskortið.

Ef tækið getur ekki lesið efni á minniskortinu gætirðu þurft að forsníða það.

Staða minnis skoðuð

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Geymsla.

Laust og notað innra minni skoðað

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Forrit > Í keyrslu.

100

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Skyndiminni hreinsað fyrir öll forrit

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Geymsla.

3

Pikkaðu á

Gögn í skyndiminni > Í lagi.

Þegar skyndiminnið er hreinsað glatast engar mikilvægar upplýsingar eða stillingar.

Efnisskrár fluttar á minniskortið

1

Gakktu úr skugga um að minniskort sé í tækinu.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Geymsla > Flytja gögn á SD-kort.

4

Merktu við skrátegundirnar sem þú vilt flytja yfir á minniskortið.

5

Pikkaðu á

Flytja.

Forrit stöðvuð

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Forrit > Í keyrslu.

3

Veldu forrit eða þjónustu og pikkaðu á

Stöðva.

Minniskortið forsniðið

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Geymsla > Eyða SD-korti.

3

Til að staðfesta pikkarðu á

Eyða SD-korti > Eyða öllu

Öllu efninu á minniskortinu verður eytt þegar þú forsníður það. Gættu þess að þú eigir

öryggisafrit af öllum gögnum sem þú vilt vista áður en minniskortið er forsniðið. Til að búa til

öryggisafrit af efninu getur þú afritað það yfir á tölvu. Frekari upplýsingar má nálgast í

Umsjón

með skrám með tölvu

á bls. 87 .