Sony Xperia E1 - Öryggisafritun og endurheimt efnis

background image

Öryggisafritun og endurheimt efnis

Almennt ættir þú ekki að vista myndir, myndskeið og annað persónulegt efni aðeins í

innra minni tækisins. Ef eitthvað kemur fyrir vélbúnaðinn eða ef tækið þitt týnist eða er

stolið eru gögn sem eru vistuð í innra minninu glötuð að eilífu. Það er mælt með að nota

Xperia™ Companion hugbúnaðinn til að gera öryggisafrit sem vista gögnin þín á öruggan

hátt í tölvu, það er, ytra tæki. Sérstaklega er mælt með þessari aðferð ef þú uppfærir

hugbúnað tækisins í nýrri útgáfu af Android.
Með því að nota forritið Öryggisafritun og endurheimt geturðu búið til öryggisafrit á netinu

af grunnstillingum og gögnum með Google™ reikningnum þínum.

Það er mikilvægt að þú leggir lykilorðið á minnið sem þú velur þegar þú tekur öryggisafrit af

gögnunum. Ef þú gleymir þessu lykilorði er ekki víst að hægt sé að endurheimta mikilvæg

gögn, t.d. tengiliði og skilaboð.

Öryggisafrit gagna vistuð í tölvu

Notaðu Xperia™ Companion hugbúnaðinn til að taka öryggisafrit af gögnum úr tækinu
þínu í PC eða Apple

®

Mac

®

tölvu. Þú getur tekið öryggisafrit af eftirfarandi tegundum

gagna:

Tengiliðir

Dagbók

Stillingar

Margmiðlunarskrár eins og tónlist og myndskeið

Ljósmyndir og myndir

101

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Öryggisafrit búin til af gögnum með tölvu

1

Gakktu úr skugga um að Xperia™ Companion for Windows

( http://support.sonymobile.com/tools/xperia-companion ) eða Xperia™

Companion for Mac OS

( http://support.sonymobile.com/tools/xperia-companion-mac ) sé uppsett í PC-
eða Mac

®

tölvunni þinni.

2

Tengdu tækið við tölvu með USB-snúru.

3

Tölva: Opnaðu Xperia™ Companion hugbúnaðinn, fari hann ekki sjálfkrafa í gang.

Eftir smástund finnur tölvan tækið þitt.

4

Veldu

Öryggisafritun á aðalskjánum.

5

Fylgdu skjáleiðbeiningunum til að búa til öryggisafrit af gögnum í tækinu þínu.

Gögn endurheimt með tölvu

1

Gakktu úr skugga um að Xperia™ Companion for Windows

( http://support.sonymobile.com/tools/xperia-companion ) eða Xperia™

Companion for Mac OS

( http://support.sonymobile.com/tools/xperia-companion-mac ) sé uppsett í PC-
eða Mac

®

tölvunni þinni.

2

Tengdu tækið við tölvu með USB-snúru.

3

Tölva: Opnaðu Xperia™ Companion hugbúnaðinn, fari hann ekki sjálfkrafa í gang.

4

Smelltu á

Endurheimta.

5

Veldu öryggisafritaskrá og pikkaðu síðan á

Næsta og fylgdu skjáleiðbeiningum til

að endurheimta gögn á tækið þitt.

Öryggisafrit tekið með öryggisafrita- og endurheimtingarforriti

Þú getur aðeins notað þessa aðferð til að taka öryggisafrit og endurheimta efni á milli sömu

útgáfu af Android. Ekki er hægt að nota hana til að endurheimta efni eftir kerfisuppfærslu.

Mælt er með því að tekið sé öryggisafrit með öryggisafrita- og endurheimtingarforritinu

áður en tækið er grunnstillt. Með forritinu er hægt að taka öryggisafrit af eftirfarandi

tegundum gagna á SD-kort eða á ytra USB-geymslutæki sem tengt er við tækið með

snúru:

Bókamerkjum

Símtalaskrám

Tengiliðum

Forritum sem sótt hafa verið af Google Play™

Margmiðlunarskilaboðum

Kerfisstillingum (s.s. hringingum, hringhljóðstyrk og tungumálastillingum)

Textaskilaboðum

Þegar forrit frá Google Play™ eru endurheimt getur það haft í för með sér

viðbótargagnaflutningsgjöld.

Öryggisafrit af efni tekið með með öryggisafrita- og endurheimtingarforriti

1

Ef þú ert að taka öryggisafrit af efni til að geyma í USB-geymslu þarf að tryggja að

geymslan sé tengd við tækið með viðeigandi snúru. Ef þú ert að taka öryggisafrit á

SD-kort þarftu að tryggja að SD-kortið sé rétt sett í tækið.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Afrita og endurh..

4

Pikkaðu á

Afrita og veldu svo áfangastað og tegund gagna sem þú vilt taka

öryggisafrit af.

5

Pikkaðu á

Gera öryggisafrit núna.

6

Sláðu inn lykilorðið fyrir afritið og pikkaðu síðan á

Í lagi.

102

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Efni endurheimt með öryggisafrita- og endurheimtingarforriti

1

Ef þú ert að endurheimta efni úr USB-geymslu þarf að tryggja að geymslan sé

tengd við tækið með viðeigandi snúru. Ef þú ert að endurheimta efni af SD-korti

þarftu að tryggja að SD-kortið sé rétt sett í tækið.

2

Á Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Afrita og endurh..

4

Pikkaðu á

Endurheimta.

5

Veldu skrána sem þú vilt endurheimta og pikkaðu svo á

Endurheimta núna.

6

Sláðu inn lykilorðið fyrir afritaskrána og pikkaðu svo á

Í lagi.

Mundu að öllum breytingum sem þú gerir á gögnum og stillingum eftir að þú býrð til

öryggisafrit verðura eytt meðan á endurheimtingarferlinu stendur.